18.11.2008 | 20:39
Fréttablaðið
Fréttablaðið er skemmtilegt í dag...
Fyrir það fyrsta er heilsíðu auglýsing frá N1 þar sem forskriftin er "Stöndum saman vörð um Ísland" þar sem þeir auglýsa sig sem frábært fyrirtæki sem hefur náð góðum tengslum við almenning á Íslandi. Þeir segja svo stuttu seinna í auglýsingunni sinni
"Við hjá N1 skorumst ekki undan, enda höfum við alltaf haft einbeittan ásetning um að setja íslenskt öndvegisins og okkur er framast kostur, til dæmis með frumkvöðlastarfi í sölu á innlendu eldsneyti - Metani"
Til að byrja með á ætlar enginn að segja mér það að þetta lið sé eitthvað annað lið en okkar ástkæra Esso sem ákvað að svíkja hvern einasta Íslending með olíusamráðinu fræga. Eru Íslendingar virkilega þannig að þeir geta ekki hugsað sér að sniðganga fyrirtæki og vilja frekar gleyma þessu? Ég veit ekki hvort fyrirtækið greiddi einhverja almennilega skuld en eitt er þó á hreinu að þeir hugsa bara um sig og muni svíkja okkur við fyrsta tækifæri. Einnig finnst mér ákaflega skondið að sjá N1 flaggandi íslenska fánanum í að reyna að efla þjóðerniskennd og á sama skapi að auglýsa sig sem frábært fyrirtæki og allir ætti helst að versla við þá. Við látum stórfyrirtæki plata okkur alltof oft, ráðamenn taka enga ábyrgð á gjörðum sínum, útrásavíkingar ekki heldur og svo sannarlega ekki olíufélögin, það er alveg á hreinu.
Ég ákvað að flétta aðeins áfram og sá aðra heilsíðu auglýsingu. "Byssur á betra verði" Sem mér finnst reyndar óendanlega fyndin auglýsing. Það ríki efnahagskrísa í landinu og við reynum að selja öllum byssur! Ég sá fyrir mig auglýsingu sem var "Það er kreppa á Íslandi, verjum eignir okkar og stöndum saman. Keyptu þér stoeger haglabyssu og þú er save" Ég gat allvegna skemmt mér konunglega yfir þessar auglýsingu.
Fréttablaðið endar þetta svo snilldarlega með því að segja okkur "brand new news". Ísraelar eru í vandræðum með glæpagengi í Tel Aviv, algjörlega nýlegt dæmi segja þeir og þeir eru byrjaðir að hafa miklar áhyggjur eftir að glæpaforingi var drepinn. Þetta er bull og ákveðinn leyndadómur sem hefur ekki komið almennilega fram. Eftir að Ísrael byrjaði að hleypa öllum inní landið þeim sem kalla sig gyðinga þá hafa þeir lent í miklum vandræðum og er rússneska mafían alsráðandi í Tel Aviv. Ísrael hefur hugsað svo mikið um óvinaríkin sín að þeir gleymdu soldið að pæla í vandamálunum sem voru að byggjast upp innan Ísrael og þá er ég ekki að tala um Palestínumennina. Þeir eru að missa tökin og eru líklegast meiri líkur á að Ísrael muni eyðast innan frá og út heldur en að önnur ríki munu eyða því.
Farinn í sund ..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.11.2008 | 09:53
Gó Kristján!
"Við erum forheimsk þjóð" og "Gölluð ríkisstjórn" hljómaði í tíma í morgun. Einhverjir tóku þetta of nærri sér og bað manninn vinsamlegast að flytja af landi brott ef hann væri ekki sáttur... voða eru þessir sjálfstæðismenn viðkvæmir þessa daganna.
Var að lesa fréttablaðið í morgun en þar var frétt um styrktartónleika fyrir ADHD. Í fréttinni stóð orðrétt: "„Kristján Jóhannsson tenór verður með okkur en hann var svo elskulegur að gefa okkur alla sína vinnu og á hann þakkir skilið. Hann flaug meðal annars hingað frá Ítalíu með lágfargjaldaflugi til að halda öllum kostnaði niðri,“ segir Sigríður Ingvarsdóttir, formaður Caritas á Íslandi." - Er þetta lið að grínast? Man enginn þegar hann tók þátt í styrktartónleikum hérna fyrir um 4 árum og hirti nánast allan ágóðan? Fór svo í kastljósið og eina sem hann gerði var að sitja með diskinn sinn og auglýsa hann. Mér finnst þetta óttalega fyndið og sé fram á annað klúður.
Fór í gær á fimmtudagsfyllerí, ekki það að ég mæli með þeim eitthvað sérstaklega en þá skemmti ég mér bara frekar vel. Þetta átti ekki að enda í einhverju í rugli, heldur var markmiðið að fræðast um Röskvu og vera málefnalegur. Maður verður allavega óttalega málglaður þegar maður er fullur svo þetta heppnaðist bara ágætlega.
Æjji, tíminn er búinn - segi eitthvað meira merkilegt seinna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2008 | 09:23
Krullur já?
Á einhverjum tímapunkti á þessu bloggi voru þrjár vondar manneskjur sem heimtuðu að ég bloggaði um þann mikla hæfileika hjá hárinu mínu að púffast upp, krullast og enda með að hausinn á mér er einsog rolla. Ég hef trúað því statt og stöðugt að hárið mitt muni enda í afró - en hef í raun aldrei látið reyna á það þar sem ég hata hárið mitt ákaflega mikið.
Ég var í sakleysi mínu kominn á msn snemma í morgun, aðallega vegna þess að ég nennti ekki að fylgja með í tíma, og birtist þar ekki gamall skólafélagi. Þessi einstaklingur er ákaflega merkilegur og heimtaði að ég bloggaði um eitthvað annað en Palestínu og var því 4 aðilinn til að heimta það að ég myndi blog um krullur mína.
Ég veit ekki alveg hvernig þetta blogg á að vera, ég gæti farið í þær vísindalegu skýringar á því af hverju hár er krullað. Þar sem ég fór á félagsfræðibraut þá hef ég bara takmarkað áhuga á því - frekar vill ég ræða um félagslegar afleiðingar þess að hafa krullur. Ef maður er með miklar krullur þá er t.d. hægt að fela hluti í hárinu, farið á skólaball með áfengi í hárinu eða hverju því sem þið viljið smygla inn. Gætið líka reynt að smygla einhverju til landsins - efast um að tollurinn fari að róta í hárinu þínu. Fyrir vísindanörda þá má hérna lesa um víkjandi og ríkjandi krullugen.
Ég gerði óformlega könnun um daginn um hvort ég eigi að krúnuraka mig einsog venjulega - eða leyfa þessum "dásamlegu" krullum að vaxa og dafna. Staðan einsog stendur er þannig að 10 aðilar eru með krullum, 2 á móti og 1 sem er umþaðbil skííítsama. Ef ég læt þetta hár vaxa þá mun ég líklegast vera kúl gæinn með afróið.
Ég nenni þessu ekki lengur - Valdi til hamingju með morgunmatinn!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.11.2008 | 14:17
Austur Jerúsalem rotnar!
Það er fróðlegt að sjá nýja borgarstjórann segjast ætla að vera borgarstjóra allra íbúa Jerúsalem. Hingað til hefur það aldrei verið þannig og efast ég stórlega að það muni verða það í náinni framtíð. Ef þið mynduð skella ykkur í göngutúr á frá austur Jerúsalem til vestur Jerúsalem þá fáið þið á tilfinninguna að þið séuð að labba á milli ríkja.
Lítil sem enginn uppbygging er í austur Jerúsalem og er gífurlega erfitt fyrir Palestínumenn að fá byggingarleyfi. Borgarstjórnin sinnir ekki almennilega sorphirslu og almennu hreinlæti og lætur það líta út fyrir að Palestínumenn séu óttalegir villimenn lifandi á villisvæði. Þrátt fyrir það mega þeir í raun ekki gera neitt í þessu og er þetta í höndum borgarstjórnarinnar sem sinnir þeim lítið sem ekkert.
Í vestur Jerúsalem sérðu götusópara þrífa götunar og allt lýtur út fyrir að vera tandurhreint og fínt. Þeir viðhalda aðeins múrnum í kringum gömlu borgina sem er vestan megin og í mörg ár bönnuðu þeir Palestínumönnum að viðhalda þeim parti sem snéri að austurborginni. Nýjar verslanir, mikil uppbygging og þróun einkennir vesturhluta borgarinnar á meðan austurhlutinn rotnar hægt og rólega til að réttlæta aðgerðir þeirra til að rífa og byggja fleiri byggðir fyrir Ísraelsmenn á svæðinu.
|
Nýr borgarstjóri Jerúsalem |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.11.2008 | 19:28
Bókhlaðan
Ég hef eytt mörgum tímum hérna á þjóðarbókhlöðunni. Mestur af þessum tíma fer þó í að gera eitthvað allt annað en að læra. Ef ég myndi bara læra þá þyrfti ég líklegast ekki að eyða svona miklum tíma hérna og væri örugglega alltaf kominn heim fyrir klukkan 19 á kvöldin.
En þjóðarbókhlaðan er samt soldið spes staður. Hérna ríkir, oftar en ekki, dauðaþögn og allir leggja sig fram við að læra og verða leiðandi afl á sínu sviði í framtíðinni. Það er þó eitt sem pirrar mig svakalega við þessa hlöðu og það er þögnin. Ég veit að á bókasöfnum og þessum stöðum á að vera þögn, en það er eitthvað við þögnina í þjóðarbókhlöðunni sem pirrar mig og líklegast marga aðra. Ég held nefnilega að þögnin hérna sé svo yfirþyrmandi og þvingandi að fólk bíði eftir að eitthvað gerist. Ef einhver missir penna, hnerrar eða geispar þá lýta allir upp og þurfa helst að finna hann sem var með "lætin". Í þvinguðu andrúmslofti bíða allir eftir að eitthvað gerist og þegar það gerist þá taka allir eftir því - þetta er ákaflega fyndið og sýnir enn og aftur hversu lítið ég nenni að læra hérna...
Annað sem pirrar mig þó líka við bókhlöðuna er fólkið sem heldur að það sé að kvísla, en er í raun að öskra. Mér finnst að fólk eigi að virða reglur safnsins og því tala sem minnst eða kvísla mjög lágt. En sumir virðast vera ekki geta gert það og gætu þeir alveg eins labbað með gjallhorn hérna um svæðið.
Háskólatorg er fínn staður til að læra - og þá tala ég um á kvöldin - því þar er alltaf svona "temmilega" mikil læti.
... það tók mig smá tíma að í að koma mér í að birta þessa færslu ... hún er sorgleg ..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.10.2008 | 14:41
Eldrimanna blog...
"Look. I am going to say what everyone at CNN, CBS, ABC and NBC is thinking but is afraid to say. Governor Palin is a stupid, conniving bitch. And it’s not because she is a strong woman - I like strong women… worship them… It’s actually the opposite. She is a weak, pathetic woman who thinks big hair, winking, baby talk and self deprecation is somehow becoming of a woman who wants to lead the free world. My god, where is Margaret Thatcher when you need her!"
- þetta er óttalega fyndið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.10.2008 | 22:47
Allt annað en að læra..
Að tveir snillingar skulu nokkurn tíman láta sér detta það í hug að ég myndi skrifa massíft blogg um þá fáránlega staðreynd að ég lít út einsog lamb þegar ég safna hári, lýsir augljósa geðveikinni sem gripið hefur um landann undanfarna daga.. svo svarið er hreint og beint: Ekki séns!
Dagurinn í dag hefur verið spennandi.. ætlaði að vakna snemma til að læra, þó svo að ég vissi það algjörlega í gærkvöldi þegar ég lagðist uppí rúm að ég myndi aldrei nokkurn tíman vakna snemma til þessa að fara að læra. En það er þó alltaf gott að ljúga að sjálfum sér öðru hvoru í þeirri örvæntingu að þetta verður allt betra. Ég vaknaði þó klukkan 8 í morgun ekki þó til að læra, heldur eiginlega bara að hanga. Þegar ég kom heim aftur seinni partinn var það algjörlega ljóst að núna þyrfti ég að læra. Ég opnaði bókina og horfði á hana og horfði og horfði aðeins meira, lokaði henni og fór í tölvuna og er búinn að hanga í henni í þrjá tíma.
Er farinn að sakna smá kvennó - þar gat ég komist upp þessa leti án þess að fá samviskubit, en eins mikið og ég reyni, þá losna ég ekki við þetta samviskubit að læra ekki. Er ég að verða betri námsmaður? Trúi því nú varla...
Ætlaði til NY um jólin .. læt mig efast um að það gerist uppúr þessu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.10.2008 | 21:19
Fullt af fínum orðum!
Ég hef ekki bloggað lengi - aðallega vegna leti og svo eftir að líf mitt varð ögn tilbreytingalausara eftir ferðalagið mitt til Palestínu, þá var ég ekki búinn að finna eitthvað til að blogga um. Gæti svo sem röflað endalaust um hvernig líf mitt er þessa dagana, en þar sem þau blogg eru óendanlega leiðinleg þá er það ekki alveg að fara að gerast....
Ég hef þó reyndar eytt óhemju miklum, eiginlega of miklum, tíma í að vafra um á netinu á meðan ég á að hlusta á félagsfræðikennarann minn ræða um Max Weeber og félaga í tilraun þeirra í að bjarga heiminum með undarlegum kenningum um hitt og þetta. Ástæðan fyrir því að ég segi undarlega er einmitt sú að ég þekki þær bara ekki nógu vel, aðallega vegna leti, og því eru þær allar stórkostlega undarlega kenningar gerðar af körlum sem voru annaðhvort í elítu Frakka eða götuflakkarar í Þýskalandi.
En á þessu ferðalagi mínu um netheima hef ég eytt vafasömum löngum tíma í að fylgjast með besserwissum moggabloggsins fara hamförum um efnahagsmál ríkisins og oftast í raun einfaldlega endursegja alla fréttina af mbl.is. Það er reyndar óendanlega fyndið að sjá hversu margir eru stunda þetta og hverskonar útrás þeir fá. Fólk talar um þjóðnýtingu, valdaspillingu, gengisfall og fullt fullt fullt af fínum orðum sem fæst okkar skilja, það hljómar bara svo vel að setja það á bloggið sitt.
En þjóðnýting er samt skemmtileg eða svona sem fyrirbæri. Við gætum svo sem tekið okkur til, á meðan við erum nú að þessu, og þjóðnýtt Færeyjar.. meina, þeir eiga olíu og hvali sem þeir drepa eins og geðsjúklingar og jafnvel eiga þeir heila helling í peningastyrkjum frá Danaveldinu. Rangt er svo sem að kalla það þjóðnýtingu, því þetta væri eiginlega innlimun en svo gætum við líklegast þjóðnýtt allt draslið. Ég velti því samt fyrir mér hvor það sé stefna Ísraela gagnvart Palestínu? "Þjóðnýta landið"
Tók strætó í skólann í morgun .. miðað við það vatnsmagn sem safnaði í fötunum(já, dótinu sem ég klæðist) þá hefði ég líklegast geta redda miðlungstóru Afríkuþorpi vatn í mánuð.
- Ég mæli endregið fólki í að taka mig ekkert alltof alvarlega í þessari bloggfærslu
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.7.2008 | 13:52
Ramallah, Jericho, Hebron, Jerusalem
Ég nenni nú varla að skrifa allt saman hvað gerðist í þessu magnaða ferðlagi okkar, en ég er að hugsa um að skrifa það bara svona í punktum...
· Fórum til Ramallah að djamma
· Löggan kom og handtók einhverja og skaut byssuskotum uppí loftið.. á skemmtistaðnum
· Komst á séns með stelpu sem er Christian Fundamentalist (já, þeir elska gyðinga)
· Eyddi halfum degi á Intercontinental hóteli i Jericho - frábær sundlaug þar
· I gömlu borginni í Hebron vorum við ellt af hermönnum.
· Þeir fylgdust líka með allri ferð okkar og voru stöðugt að leita okkur uppi
· Einn þeirra miðaði byssu á mig
· Hittum landnema sem er kanadískur en býr nú í "Ísrael" .. m.ö.o Hebron, sem er hertekið svæði.
· Öryggisverðirnir i kringum bænahús gyðinga, þar sem gröf Abrahams er, urðu mjög vandræðalegir þegar þeir vissu ekki hversu gamalt bænahúsið er.
· Landnemarnir voru ekkert sérstaklega ánægðir með að hafa okkur labbandi útum allt á herteknu svæðunum.
· Byssu eign landnema er mikil
Þetta var svona það sem gerðist í grófum dráttum í þessu ferðalagi okkar. Áttum reyndar samtal við hermenn sem var á þessa leið:
Við: Can we go this way to the Arab sector, or do we have to go back this way?
Hermenn: Why would you want to go to the Arab area, it stinks!
Við:ööö.. our hotel is there.
Svo fórum við bara og skildum þá eftir frekar ringlaða.
Hebron er samt einsog draugaborg, margar búðir eru lokaðar útaf hernáminu og er erfitt að ýminda sér þetta, en ég tók fullt af myndum svo þið verðið að koma bara í heimsókn og sjá það sem er í gangi þarna.
Þetta er samt síðasti dagurinn minn í þessu helga landi. Legg af stað á flugvöllinn klukkan 0300 í nótt og geri ráð fyrir að vera kominn heim á klakann seint annað kvöld. Þessi ferð er búin að vera hreint út sagt ótrúlega skemmtileg og mjög fróðleg. Ég vill þakka Önnu fyrir að vera frábær ferðafélagi og einnig Einari og Stefán fyrir að vera frábærir herbergisfélagar ;)
Þeir sem vilja fylgjast áfram með því sem er að gerast í Palestínu, þá ættuð þið að skoða anna-palestina.blogspot.com en hún verður úti í mánuð í viðbót..
... svo er það bara djamm næstu helgi .. ;)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
10.7.2008 | 15:35
Hid hlutlausa Haaretz
Haaretz Daily News Paper sem er ein helsta upplysingaveita moggans vid frettaoflunar i midausturlondum hefur verid ad med auglysingar a heimasidu sinni sem auglysir heimasidu sem hvetur til drapa a Palestinskum fjolskyldum asamt thvi ad losa sig vid fjoldan allan af arobum
"...advocating the total destruction of the Palestinian people, the murder of large numbers of Muslim civilians, the assassination of the family members of Arab rulers, and the use of chemical, biological and nuclear weapons against dozens of countries."
Thetta er ekki i fyrsta skiptid sem thessi "hlutlausa" frettablad auglysir slikan hlut, en meira ma lesa um thetta herna
Ungur piltur var svo skotinn til bana um 4 leytid i nott, en herinn hafdi nu ekkert fyrir thvi ad hringja a sjukrabill fyrr en um klukkan 7 leytid, og tha var litid haegt ad gera fyrir drenginn. Nanar ma lesa um thad herna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)



kittysveins
austurlandaegill
arabina
sjalfbodaaron
astahulda
rassgat
gretaulfs
jonnnnni
robertb
salmann
semaspeaks
svanaa
vest1
