Leita í fréttum mbl.is
Embla

Austur Jerúsalem rotnar!

Það er fróðlegt að sjá nýja borgarstjórann segjast ætla að vera borgarstjóra allra íbúa Jerúsalem. Hingað til hefur það aldrei verið þannig og efast ég stórlega að það muni verða það í náinni framtíð. Ef þið mynduð skella ykkur í göngutúr á frá austur  Jerúsalem til vestur Jerúsalem þá fáið þið á tilfinninguna að þið séuð að labba á milli ríkja.

Lítil sem enginn uppbygging er í austur Jerúsalem og er gífurlega erfitt fyrir Palestínumenn að fá byggingarleyfi. Borgarstjórnin sinnir ekki almennilega sorphirslu og almennu hreinlæti og lætur það líta út fyrir að Palestínumenn séu óttalegir villimenn lifandi á villisvæði. Þrátt fyrir það mega þeir í raun ekki gera neitt í þessu og er þetta í höndum borgarstjórnarinnar sem sinnir þeim lítið sem ekkert.

 Í vestur Jerúsalem sérðu götusópara þrífa götunar og allt lýtur út fyrir að vera tandurhreint og fínt. Þeir viðhalda aðeins múrnum í kringum gömlu borgina sem er vestan megin og í mörg ár bönnuðu þeir Palestínumönnum að viðhalda þeim parti sem snéri að austurborginni. Nýjar verslanir, mikil uppbygging og þróun einkennir vesturhluta borgarinnar á meðan austurhlutinn rotnar hægt og rólega til að réttlæta aðgerðir þeirra til að rífa og byggja fleiri byggðir fyrir Ísraelsmenn á svæðinu.

 


mbl.is Nýr borgarstjóri Jerúsalem
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég hef nú heyrt að það sé alls ekki svo slæmt.  Palestínumenn sem búi í Ísrael séu bara nokkuð ánægðir með Ísraelsmenn.

... (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 16:53

2 Smámynd: Yousef Ingi Tamimi

Að sjálfsögðu er líf þeirra sem búa í Austur Jerúsalem mun auðveldara en þeirra sem búa í palestinskum borgum á vesturbakkanum. Það þýðir samt ekki að líf þeirra er gott. Ísraelsmenn hafa markvisst verið að skemma hús Palestínumanna þarna og komið í veg fyrir að þeir geti haft einhverja uppbyggingu. Markmiðið virðist vera að koma í veg fyrir fjölgun palestínumanna þarna og fjölga Ísraelum.

Yousef Ingi Tamimi, 12.11.2008 kl. 17:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Yousef Ingi Tamimi
Yousef Ingi Tamimi
Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband